Langspilstilraunir í 5.bekk

Langspilstónleikar á bókasafninu í Spöng. Barnamenning 2026 Borgaskóli

 

Langspilstilraunir í 5.bekk

Nemendur í 5.bekk tóku þátt í Barnamenningarhátíð á dögunum. Blásið var til tónleika á bókasafninu í Spöng. Tónleikarnir voru afrakstur langspilssmiðju undir leiðsögn langspilsleikarans Eyjólfs Eyjólfssonar. Í smiðjunum lærðu nemendurnir að tileinka sér undirstöðuatriðin í langspilsleik, svo sem plokk með álftafjöðrum, stramm og bogastrok. Einnig hafa þau fengið þjálfun í samspili með tveimur meðlima kammerhópsins Nordic Affect sem spila á barokkhljóðfæri og raftónlistarmanninum Stefanos Skialivas sem jafnframt er meðlimur í Intelligent Instruments Lab við Háskóla Íslands.