Grænfáni # 3
Þann 9. nóvember í einstaklega fallegu veðri tókum við á móti Grænfána númer 3 við hátíðlega athöfn. Fulltrúar frá Landvernd komu og sögðu nemendum frá Grænfánanum og starfssemi Landverndar og síðan var gengin hálfhringur í kringum skólann og fáninn dreginn að húni með aðstoð nemenda í umhverfisráði. Við höldum síðan áfram vegferð okkar í að gera vel í umhverfismálum næstu tvö árin í átt að fána númer 4. Umhverfisráð ákvað að næstu tvö árin verði lýðheilsa þemað og þar geta svo sannarlega heimilin tekið þátt í átaki okkar að betri heilsu okkar og heilsu Jarðarinnar okkar.