Borgaskóli í 2. sæti í Lífshlaupinu!

Nemendur í Borgaskóla fá viðurkenningu fyrir árangur í Lífshlaupinu 2026
Lífshlaupið 2026, viðurkenning frá ÍSÍ

Borgaskóli í 2.sæti í Lífshlaupinu

Nemendur í Borgaskóla stóðu sig vel í Lífshlaupinu. Í ár lentu nemendur í 2. sæti sem er frábær árangur hjá þeim en þess má geta að þeir hafa verið í verðlaunasæti síðastliðin 4 ár.  Að því tilefni fóru fulltrúar okkar í höfuðstöðvar ÍSÍ (Íþróttasamband Íslands) og tóku við verðlaunum.