5.bekkur og umhverfisráð gróðursetja birkiplöntur
5.bekkur og umhverfisráð nýttu góða veðrið í dag og gróðursettu fjölda birkiplantna. Plönturnar eru gjöf frá Yrkjusjóði. Undanfarin ár hafa nemendur plantað birkiplöntum í smáhæð sem er norðan við bílastæðið. Við fylgjumst spennt með næstu ár og stefnum á að þarna verði kominn smá skógur eftir nokkur ár.